Uss...

25.01.2008 03:57:51 / Rebekka

heeeeelllóó :)

Hæ elsku skvísur!!! Hérna er eitthvað sem ég er búin að vera hlæja yfir í allan dag á milli þess að læra og sona skemmtilegt :) http://www.thedailyshow.com/video/index.jhtml?videoId=148212&title=operation-deserter-storm og hérna er svo part 2 http://www.thedailyshow.com/video/index.jhtml?videoId=148348&title=operation-deserter-storm-pt.-2 Kannski er ég bara sein og þið allar búnar að sjá þetta en allavega fyrir hina sem hafa ekki séð!! Annars flottar myndir hérna Sara fyrir neðan, djöfull erum við alllar floooottar ;) haha!!! En hey stelpur GÓÐA FERÐ í heimsreisuna!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! þið hinar sem eruð á íslandi please komið til mín í heimsókn ;)*********** Lovejú girls Kveðja frá kananum sem týndi myndavélinni sinni og sem verður kannski bóndi á næsta ári ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 13:32:14 / SaraLind

Gömlu dagarnir :D

Jæja ég átti leið mína um internetið og fann fullt af gömlum og ekkert svo fallegum myndum, og ákvað að deila því með ykkur, bannað að vera reiður, því þetta er allt in the past og erum svo mikið fallegri og betur sett í lífinu í dag ;)

Þarna voru létt balletspor tekin....

.

.

Hjólakvöldið mikla!

.

.

.

Þegar Jónsi reyndi að eitra fyrir fólki !

.

Lára ákvað að borða einu kleinuna sem Jónsi skildi eftir, alveg brjáluð :D
Já Viggó minn, ég sakna hársins, farðu að safna !
og það var twistað
Elfa á lausu og að daðra
Það þarf enginn orð yfir þessa mynd !
.
Rebbi í essinu sínu :D
Fannst þessi eiga vel við allar þessar myndir....
Takk fyrir bingó, bloggað tvo daga í röð, hvað er að gerast !!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 13:30:01 / SaraLind

Dósaskinkan mikla !!

Jæja ég ákvað að hripa niður nokkur orð í hræðslu minni, þar sem líflátshótanir frá stelpu sem byrjar á M og endar á öngrét eru orðnar soldið slæmar og er ég orðin mjög hrædd um líf mitt !8)

* Jólin eru liðin og við spiluðum út í eitt, átum út í eitt, drukkum áfengi og höfðum það voooða vooða gott....

* Það var áramótateiti heima hjá Guðjóni og Bjarna, skemmtilegt nokk !

* Erum búnar að gera mikið í því að spila líka eftir jólin og vill so skemmtilega til að mitt lið hefur alltaf unnið, og er ég búin að vinna Margréti og Þóru(erkispilaóvini) sona cirka 25 sinnum á síðastliðnum 2 mánuðum, geri aðrir betur, sérstaklega þegar ég og Elfa tókum þær og pökkuðum þeim saman í nýja Partý og co !!!

* En já talandi um það þá er Elfa lilla komin heim og hefur heiðrað okkur með nærveru sinni þangað til við förum, mjöööög gaaaman :) og þá sérstaklega var gaman þegar Gauti tók hana og gerði hana fjólubláa í framan um helgina....

* En nú er eingöngu miiiikiiiilll spenningur í gangi ásamt því að vera með sexfaldan hnút í maganum því það eru 6 dagar þangað til við förum í reisuna miklu með pakpoka á bakinu, í teva sandölum, túristabuxum, kynþokkinn verður í hávegum hafður það er allavega eitt sem er víst, bíðiði bara eftir myndunum :D

* Ég lofaði einnig að ég skildi blogga um hvað stelpurnar eiga rooosalega bágt með að þurfa að vera hérna heima, en lítiði á björtu hliðarnar, þið getið farið á snjóbretti, þið getið farið í miðbæ Reykjavíkur og endað blautar upp á brjóst eftir að hafa runnið í poll(afsakið mig, mjöög illa gert af mér), þið getið skellt ykkur upp í sumó, skoðað bloggið okkar, beðið í ofvæni eftir okkur, og fagnað so svaaakalega þegar við komum heim með því að standa á flugvellinum í gleðigalla og knúsað okkur og gefið okkur íslenskt nammi og byrjað á því að segja okkur að það sé ekki töff að vera í teva sandölum á íslandi og að maður eigi að vera í kjól þegar maður fer út að skemmta sér en ekki í buxum þar sem þú getur rennt skálmunum af ( fyrir utan það að ég mun aldrei fara í þannig buxur á minni lífsleið;) :D

* En Íris er hætt að vinna þar sem þau fara út á Fimmtudaginn, seinasti dagurinn hjá mér og Steinullinni er á morgunn (flýttum því aðeins því við gátum ekki meir), en svo er hún Þóra Hrund svo helvíti dugleg og ekki jafn löt og við hinar og ætlar bara jafnvel að vinna fram á Föstudag...

* En svo er það hún Rebbi lilli sem kemur heim í vor á sama tíma og við og ætlar byrja líka að læra á Íslandi, þannig það er vooðalega gaman, það er bara ekkert hægt að vera sona lengi í burtu frá okkur, það er bara þannig :D en minnir mig á það Rebbi minn, að Hanna var að fá hund sem heitir líka Rebbi alveg eins og þú :)

* En við héldum smá kveðjupartý á laugardaginn og var mjög gaman og sumir voru nú fyllri en aðrir en það er bara eins og gengur og gerist :D En svo tók Tóta fullt af myndum og mun láta þær inn á innan skamms, það þarf bara aðeins að klípa í hana og þá gerir hún það, hún er so hlýðin :)

* En þið verðið að afsaka ritstífluna í mér núna, því ég hugsa um fátt annað en heimsreisuna þannig ég ætla að enda þetta hér áður en þetta verður að svaka heimsreisubloggi :D En þegar við förum út þá ætlum við að blogga á www.123.is/heimsreisa08 og Íris, Guðjón og Jónsi blogga á www.123.is/heimsreisan þannig þar munum við reyna eins oft og við getum að blogga og setja inn myndir :D en ég bið ykkur bara vel að lifa, blessó ;*


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 19:49:47 / SaraLind

Jólagleði :D

Það eru ekki komin jól fyrr en Bjartur hefur látið upp hreindýrahornin og jólanefið, þetta er verk Jóns Sigurðssonar bróður hennar Steinunnar sem verður seint talinn af eðlilegum ættum !!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 12:44:37 / SaraLind

Jingle bells, jingle bells

Því það voru tveir sem skömmuðu mig í dag fyrir að hafa sona gamalt blogg þá ákvað ég að hlýða þar sem ég hef víst enga afsökun hef ég heyrt fyrst ég vinn við tölvu 8|

En það líður senn að jólum börnin góð og verð ég eiginlega að fá að monta mig smá yfir herberginu mínu, því ég og Steinull skelltum okkur í blómaval og versluðum jólaskraut og ég tók til í herberginu mínu sem ég er byrjuð að gera ótt og títt eftir að ég breytti herberginu mínu og þykir nú loksins vænt um það, en so skellti ég upp jólaskrautinu og það er sooo vooðalega fallegt núna, flackhau er alveg komin með samkeppni, þarf alveg að ákveða mig hvort ég eigi að horfa á hann eða gluggann :) 

En jæja ég ætla að fara að tala um það sem ég er með á heilanum þessa dagana og það er heimsreisan góða góða..... Þeir sem nenna ekki að lesa um heimsreisuna þá myndi ég alveg rúlla þangað til neðst, því þetta verður soldið langt ;)

Byrjum á að skella okkur til Brasilíu á carnivalið í rio og þar ætlum við sko aldeilis að taka þátt í showinu og erum á fullu að sauma okkur sona efnismikla búninga og ég tala nú ekki um Guðjón og Jónsa !!

                

Heyrðu svo eftir 12 daga skemtun í rio er komið að Perú og aðaltakmarkið okkar þar er að hitta Miss Perú sem var einu sinni Ungfrú Heimur, nauðsynlegt ! Kíkjum so kannski aðeins við í Machu Pichu.....

 

Svo er komið að chile og þar ætlum við að gera eitthvað bilað skemmtilegt eins og að læra skylmingar, það er víst eikkur hittari í chile, aldrei að vita :D

   veiii

Heyrðu svo er komið að nýja sjálandinu góða, þaðan fer ég ekki fyrr en ég er orðin góð á brimbretti, þannig það getur verið að ég komi aldrei heim aftur:o

 Þetta gerum við á daginn... !!

 Svo ætlum við að taka nokkur kvöld í að hlusta á Ronan Keating, gráta og horfa á sólsetrið ! Er það ekki stelpur ?

Svo er komið að því að hitta Írisi, Gauja og Jóngó á ný í Ástralíu og verðum þar í 3 vikur, það verður gleðistund :) Þar erum við búin að leigja okkur tvo bíla sem kalla sig wicked van, sona rúgbrauðsbíll þar sem við ætlum að keyra um Australia og gista í þeim, og já við þurfum að keyra á öfugum vegarhelmingi sem er búið að valda mér miklu hugarangri því að ég veit að ég keyri á kengúru og verð látin í fangelsi það sem eftir er lífs míns, en stelpurnar halda að það venjist nú fljótt, en við sjáum nú til með það :) En hér er smá sýnishorn af rúgbrauðinu sem við gætum fengið....

 Við verðum nú helvíti svöl á þessu tryllitæki !!

Svo býst ég við að þreytan verði orðin soldil mikil eftir Ástralíuna þannig við skreppum (ennþá öll saman) til Balí til að slappa af og hafa það gott, við verðum þar í 12 daga en þau verða þar ekki jafn lengi.... Þar verðum við með tærnar upp í loftið, fínt ef eikkur nuddar okkur og fáum kokteil í hönd....

 

Eftir þessa dýrindis slökun þá er komið að Thailandi og þar verður flakkað út um gervallann völl og skoðað, borðað hunda (Steinunn getur ekki beðið eftir því;), skellt okkur á fílsbak, ef við þorum þá kannski stökkvum við niður af klettum eins og Davíð og þeir gerðu og marg marg fleira skemmtilegt....

Svo er komið að lokalandinu okkar og verðum þar í 3 vikur, og það er Indland og komst ég að því í gær að það verður sona cirka 50 stiga hiti, þannig ekki verða hissa þó að Þóra komi heim eins og svartur maður og ég komi heim eins og ég hafi annaðhvort farið í freknuverksmiðju eða þarf að fletta af mér skinnið með ostaskera sökum bruna, en það er víst bara upplifun var ég að heyra.... 

Thumbnail  

Já þarna er komið að leiðalokum, og komum við svo beint heim í sumarið, lendum á Íslandi 24.maí, og þá búumst við við að það verði skrúðganga frá Keflarvíkurflugvelli og heim, og að það verði vörubíll af trompi fyrir utan flugvöllinn, mm hvað það verður gott að fá tromp eftir 4 mánaða aðskilnað :lol:

Verðum so líka með heimasíðu sem við bloggum á og látum myndir, eigum bara eftir að búa hana til....

En ég ætlaði að segja ykkur frá ýmsu fleiru en þetta tók bara so langann tíma að ég er alveg að verða búin í vinnunni, en það má bíða betri tíma :)

Ps. Gleymdi alveg að segja ykkur frá skíðaferðinni til Ítalíu sem ég byrja á að fara í í viku, og kem so heim og fer daginn eftir í heimsreisuna, gleði gleði ;)

Sara Lind


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 10:00:51 / SaraLind

Squirt

Jæja ég lofaði Þórstelinu að ég skyldi blogga þar sem það er meira að gera í vinnunni hennar en minni þessa stundina, sáuði hvernig ég lagði áherslu að einu sem blogga hér eru ég og Þórstel :evil: Já takið þetta á ykkur stelpur ;)

En allaveganna þá vorum við að koma frá Dk og það var vooooðalega gaman, hittum loksins Elfu lillu og Möngréti og þær eru að hafa það illa gott í Árhús og vil ég þakka henni Möngréti innilega fyrir gistinguna og afsaka draslið sem fylgdi okkur og hún náði samt sem áður að ala okkur nokkuð vel upp og þetta mun ekki koma fyrir aftur ;)

En það sem við gerðum í Dk var að versla, borða, horfa á flackhau á tvöföldu loftmatressunni, drekka bjór, slóum persónulegt met í að koma seint heim eftir fyllerí, komum heim kl. hálf 11 á sunnudagsmorguninn, það kalla ég góðann árangur :D En já svo þarf ég að segja ykkur glæpasögu, þannig er mál með vexti að við vorum á leiðinni heim úr mollinu í taxa og við sátum í rólegheitunum (engar í belti, eins skynsamlegt og það er), svo vorum við að fara yfir gatnamót og þá kemur lítill fólksbíll og neglir inn í hliðina á okkur og maðurinn stekkur út úr bílnum og tekur til fótanna því að hann var jú á stolnum bíl, lenntum alveg næstum í Law and Order keisi, það er bara þannig !!

 Heyrðu já svo vildi ég koma að spurningu hér, það er skoðannakönnun í gangi ! Er það draumur allra stráka að geta látið stelpu squirta ? Squirt og dvergaklám kom líka við sögu í Dk, Bridget the midget vakti þá helst kátínu hjá okkur :)

Heyrðu nú styttist biðin óðfluga í að Rebbinn komi heim, stelpan kemur heim 23. nóv og ég er búin að lofa henni taumlausri gleði, þannig það er bara um að gera að leggja hausinn í bleyti :D

En Steinull og Íris skelltu sér í bekkjarpartý um helgina, þar sem gleðin var einnig í hámarki og tóku smá sumarbústaðarstemmningu á þetta líka og var vooða gaman :D og Íris lét einmitt inn nýjar myndir á www.123.is/irisros hún er so voooða dugleg....

En ég ætlaði bara rétt að henda inn einni færslu þar sem rassinn á Þóru var búin að vera of lengi :) En hún ætlar einnig að láta inn myndir frá Dk innan skamms....

Bless bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 14:55:17 / SaraLind

Guð blessi Internetið !!

Jæja haldiði að stelpan hafi ekki verið búin að gera færslu en svo rak ég litlu feitu dvergaputtana mína í eikkurn takka hérna og það datt allt út, en það er allt í lagi þar sem þetta gerist í annaðhvort skipti sem ég skrifa færslu, eins og ég sagði þér í gær Þóra, þá læri ég ekki af reynslunni, það er bara þannig !!

En þetta var reyndar mjög ómerkileg færsla, talaði helst um hversu lítið væri að gera hjá mér í vinnunni og að ég væri búin að skoða allt merkilegt og ómerkilegt á netinu, borða allt sem ég kemst í og eina sem ég átti eftir að gera var að blogga sem mistókst hrapparlega :) En svo spjallaði ég líka aðeins um að jólin væru nú svo sannarlega í nánd, fyrstu jólin í 14 ár án prófa, þó að ég hafi kannski ekkert svo fundið fyrir því í 1-.5.bekk í grunnskóla.... En já svo það sem stóð upp úr í færslunni var það að ég var að segja frá því að Þóra kúkaði í rúmið mitt í gær, reyndi allt til að afsaka það, reyndi að klína því á mig, en þar sem þetta var á sama stað og hún lá þá komumst ég og Steinunn að því að þetta var vonlaust hjá henni, hún er ennþá ósátt við það, en vonandi komumst við að samkomulagi áður en við höldum út í hinn stóra heim... En ég nenni engann veginn að skrifa allt sem ég skrifaði þannig ég kveð að sinni og býð ykkur góða helgi ;)

 Þetta er sökudólgurinn !!


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 20:25:50 / ÞoraHrund

jólin, jólin, jólin koma brátt, jólaskapið kemur smátt og smátt

Já góðan og blessaðan daginn það er aldeilis langt síðan maður hefur bloggað og er maður kannski dottin í kviksyndi myspacins. Hverjum hefði dottið í hug að Steinunn Gróa hafi fallið þar sem skoðun hennar var að þetta  væri tilgangslaust drasl sem henni fyndist asnalegt og blabla.. það er alltaf gott að standa bak við orð sín. Ég er með smá tilkynningu svo ég gleymi því ekki og verð ábyrg fyrir því að anna steinsen sæti ein heima hjá sér með k0kur á borðinu og engin in the kk group mætti. Það er s.s KUSK OG KAKTUS hittingur 18.nóvember kl.14 heima hjá ms. steinsen í nýja inlit útlit húsinu. annars er bara allt það besta að frétta af okkur dömunum og allt gengur sinn vanagang. ég og hannsi erum að fara til dk núna eftir 2 vikur að heimsækja möngu lillu og elfu. það verður voða voða gaman og getur maður nýtt ferðina og verslað jólagjafir og svona :) óléttuveikin heldur áfram að herja á landann og ef stelpur eru ekki óléttar þá halda þær að þær séu það, múhaha! ég er ekki búin að lyfta mér upp í mánuð og legg ég því til dömur að þið komið með eithvað gott game næstu helgi, im in og í þetta skipti þá lofa ég, like mc luvin. Það styttist óðum í heimreisuna okkar miklu og eru núna bara 90 og eithvað dagar í hana sem er ekki neitt. ég er orðin mjög spennt og eruði að átta ykkur á því að jólin eru bara á næsta leiti. stelpur mínar ég ætla bara að minna ykkur á staðina sem við erum að fara á, ekki örvænta

Peru

 En jæja ég er farin að vinna stelpurnar í pool. svo ég blogga bara aftur seinna. Rebbi þú ert sko alveg að koma heim! erum við að ræða það eithvað.. haha næturvaktin er náttla einum of fyndin

 Kv. Þóra Hrund


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 11:20:55 / SaraLind

Ertu skarpari en skólakrakki, skynsamari en FM-hnakki.... !!

Já núna frá því klukkan 9 í morgunn, þá er ég búin að heyra setninguna "Ertu skarpari en skólakrakki, skynsamari en FM-hnakki", það merkilega við útvarpstöðina Fm957 er hversu góðir þeir eru í að nauðga hlutunum, eins og að spila sum lög í magni sem ekki hægt er að skrifa með stöfum.... gleði gleði....

En að öðru, sökum annríkis í gær þá tókst mér ekki að skrifa afmælisfærslu fyrir hana Rebekku lillu, en hún varð 20 ára gömul í gær litla stelpan okkar, og trúi ég ekki öðru en að það hafi verið bilað gaman hjá henni í US and the A eins og hún kýs að kalla þetta :D En það var líka eikkur skemmtidagur hjá henni í skólanum í gær, og tennisliðið fór allt saman á ströndina í staðin fyrir að fara á æfingu, svo bauð hún "nýju" vinkonum sínum í mat á Fimmtudaginn og þær fóru á fyllerí ;) En svo kom líka famylían hennar til hennar í gærkvöldi og það hefa vafalaust verið fagnaðarfundir.... En hún Rebbi okkar kemur svo heim 20.Nóvember og mér gegnur vel með mánaðar-dagskrána sem ég lofaði henni, og þér mun sko ekki leiðast Rebekka mín, en vonandi áttiru geggjaðann dag þar sem þú ert orðin so voðalega gömul ;*

Mynd númer 21 Rebekka í USA

En já gærkvöldið einkenndist aðallega af unglingapartýum og byrjuðum ég og Steini í einu, og ætluðum að reyna að haldast þar í smástund, til að passa að allt færi skikkanlega fram, en við entumst í svo mikið sem 5 min, þar sem við vorum farnar að finna verulega fyrir eyrnaskemmdum og vorum hræddar um að við myndum enda í sleik við busastrák þar sem mikið gel, tan og litað hár heillar okkur svo gífurlega.... og ekki má gleyma frösum á við "refsa bísunum" og fleirum sem ég tel mig ekki geta haft eftir þeim.... En leið okkar lá samt sem áður í annað unglingapartý sem búið var að loka þegar við komum okkur til mikillar gleði, það mætti halda að aldurinn væri farin að segja til sín, kannski að maður leggist bara fljótlega í saumaskapinn og baksturinn....

En þrátt fyrir að góða systirin hafi verið búin að taka voða vel til þegar ég kom heim í nótt þá gerðist samt sá heppilegi atburður að einhverjum hafði tekist að læsa herberginu mínu, mér til mikillar gleði og yndisauka, og hafði ég ekki mörg falleg orð að segja um ungu stúlkuna, og enginn lykill fannst, þannig ég er núna stödd í vinnunni í buxum af hrefnu, sem þýðir að ég ætla bara að halda mig hérna í stólnum fyrir aftan afgreiðsluna í íþróttabuxum/latexgalli....

Hvað myndu þið gera ef dregið yrði af laununum ykkar í hverjum mánuði fyrir allar klósettferðir sem þú færir í í vinnunni ?

En ég ætla að fara að segja þetta gott og koma mér að vinnuskyldum dagsins í dag sem eru þó nokkrar skal ég segja ykkur miðað við laugardag, stefnir allt í góðann dag... :) En ætla að enda þetta á nokkrum punktum....

- Ég og Steinunn rústuðum Mr. and Mrs., það var gaman....

- Íris er á Akureyri og þau voru tekin af löggunni, Guðjón criminal og þau eru að fara á Pál Óskar ball í kvöld !!

- Þórstel er á krossgötum lífsins.....

- Það stefnir allt í rigningu út árið....

- Elfa verður heima í tvær vikur um jólin en ekki eina, gleði gleði

- Ég er skotin í Degi B. Eggerts....hálfvandræðalegt....          

                           


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 14:01:58 / SaraLind

106 dagar.... :D

Heil og sæl lömbin mín, afsakið Rebekka, en ég tel mig samt ekki vera að yfirblogga þar sem það eru liðnir 2 dagar ;* og líka því mér leiðist svo svakalega hérna í vinnunni, þar sem fólk er ekkert allt og duglegt að koma í ræktina á laugardögum !!

En núna eru stelpurnar staddar upp í sumó, þær eru so vondar að þær fóru án mín, létu mig vera heima og vinna 8|    En þrátt fyrir það skemmti ég mér konunglega í gærkvöldi án ykkar stelpur ;) maður kann þetta.....

En já við erum búnar að vera so latar að blogga að við erum ekki einu sinni búnar að gera afmælisfærslu handa litla Lortinum, allavega litlu sæti Lorturinn okkar átti afmæli 5.október  og bauð okkur í matarfestival, sem samanstóð af öllu því sem þú getur í þig látið og tel ég að við höfum staðið okkur nokkuð vel miðað við magnið sem var í gangi þarna... voða voða gott... En við óskum þér Lára innilega til hamingju með afmælið ;* Ég rakst hérna á lýsingu á Láru á ferð minni um veraldarvefinn, lýsing á Láru semsagt rétt áður en við fórum til Costa Del Sol og hún var svohljóðandi: Lory fokkah! Lára er obboslega fín stelpa og mjög gaman að henni. Reyndar á hún einn galla og það er þessi mjög svo sterka táfýla sem margir verslingar kannast við. Hún er gift manni sem var ekki með lyktarskyn þegar þau kynntust en viti menn lyktarskynið læknaðist og skyndilega var hann farinn á sjóinn. Svo nú situr Lára í festum með vodkapela í annari og biblíuna í hinni og bíður eftir honum Óla sínum. Óla hefur hún ekki heyrt frá í sjö ár eða frá því hún var ellefu ára, árið sem þau giftu sig. Lára músímúsímúsímús . Ég hef það sterklega á tilfinningunni að Steinunn hafi staðið fyrir þessu, en hver veit hver veit...

 Þarna er litli rauðhausinn ;)

En svo ég haldi aðeins áfram með afmæliskveðjur, þá átti Lertinn líka afmæli í gær og óskum við honum innilega til hamingju með afmælið og Rebekka á afmæli eftir 6 daga ;)

En allaveganna þá líður óðfluga að jólum, því ég var að hlusta á útvarpið og jólaundirbúningurinn er þegar hafin á nokkrum stöðum á landinu og get ég ekki annað en glaðst yfir því, þar sem jólin er yndislegasti tími ársins klárlega, þar sem maður liggur, borðar, allir voða glaðir og góðir ;) og það þýðir líka það að þá styttist enn frekar í heimsreisuna og Elfa og Rebekka verða komnar heim, eintóm gleði.....

Svo í kvöld ætlum ég og Steini að elda dýrindiskvöldverð handa hnátunum, hann verður svo sannarlega ekki af verri endanum... það verður vooða gaman... :D

En heyrðu ég náði að láta tímann líða aðeins, 45 min eftir, Hresshildur kveður að sinni ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 17:01:34 / Rebekka

hehehe!!! :)

Hæ hó snillingarnir mínir!! Heyrðu ég varð bara að deila því með ykkur því ég ligg í kasti hérna að kíkja inná gömlu síðuna okkar,,, knwo-mamas..hahaha það er bara of fyndið :) ég og sara erum að deyja úr hlatri í gegnum msn þar sem maður er ekkki staddur á landinu!! En váá hvað maður saknar MS eitthvað :( en allavega vildi bara deila þessu með ykkur elskurnar mínar, ps.ef einhver veit um músamyndina þá erum ég og Sara að leita af henni,,myndarinnar er sárt saknað ;) ps.2. Hvað er að gerast annars á klakanum, eruð þið ekki að grinast í mér með það að meirihlutinn se fallinn í borgarstjórn, no more Villi og Dagur er að fara taka við...... Ég er EKKI sátt!!!!!! En later girls.......lovejú ;*****

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 11:36:42 / Uss

Já þið segið það

Hæ og hó... Hvaða vitleysa það er aldrei neitt að gera hjá mér í vinnunni :D En það er rétt við verðum að vera duglegri að skrifa þar sem hálfur vinahópurinn er flúinn til útlanda! Verðum að skrifa og skrifa og leyfa þeim að sakna okkar.

Söru langar í úrið hans Bernharðs... mig líka. Ég man eftir þegar þættirnir um hann Bernharð voru í sjónvarpinu. Ég horfði á þá og lá svo dolfallin yfir þessum heillagrip og óskaði einskis heitar en að koma höndum yfir einn slíkan. Mér fannst heillandi að geta komið mér út úr alls kyns vandræðum með úrinu, lengja sólahringinn, flýta skemmtilegum atburðum og sofa lengur.

Samt fannst mér alltaf skemmtilegasta tilhugsunin að stríða pabba með úrinu. T.d. þegar hann væri að klæða sig úr sokkunum þá mundi ég stoppa tímann og klæða hann aftur í sokkana. Svo myndi ég kveikja og fela mig og þá myndi hann klæða sig aftur úr og vera dáldið hissa og svo myndi ég gera aftur og aftur þangað til hann væri búin að fara 8 sinnum úr sokkunum. Svo myndi ég að sjálfsögðu alltaf vera að stoppa tímann, stilla mér upp fyrir framan fólk og kveikja svo og bregða.......... gaaaaaaaaaaaaman. Bara ef það væru til svona úr.

Fyrst ég er farin að tala um hvað mig langar í þá langar mig líka rosa mikið í apa. Alltaf þegar ég horfði á apaspil þá langaði mig svoooo mikið að besti vinur minn væri líka api. Ég man eftir að hafa spurt mömmu hvort það væri alveg öruggt að maður mætti ekki flytja inn eitt stykki, getiði líka ímyndað ykkur hvað maður hefði líka orðið vinsæll í skólanum eigandi apa!

Barbískipið hennar Írisar er líka ofarlega á lista yfir hluti sem mig hefur langað mest í frá því ég man eftir mér. Við gátum leikið okkur endalaust með það, það var risastórt, bleikt og geggjað flott. Svo var líka hægt að búa til sjeik á því.... alltaf þegar ég fór til Írisar í Skógarásinn og lék mér með skipið gekk ég út með hnút í maganum yfir að eiga ekki svona sjálf.

Einhvern veginn svona var það, nema flottara... þið sjáið nú hvers vegna magahnúturinn myndaðist :D

Heyrðu ég ætla að snúa mér að vinnu... hlakka til að fá ykkur snúðana heim og hafa ykkur með okkur á skralliiiiiiiii Kiss kiss og knús


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 02:59:12 / Rebekka

sööööössshhhh!!!

Hæ ástarenglar á klaka jarðdar!!! Heyrðu hvað segiði?? Ameríkan hefur vond áhrif, býr bara til alkóhólista, ég dreg ykkur allar með mér í súginn þegar eg kem heim þann 15.nóv takk fyrir og ekkert múður ;) SVo verður elfa tekin í gegn þann 13.des þegar hún joinar okkur á klakann og verður í 3 vikur !! múhaha :) og margrét ósk hvenær ert þú væntanlega?? svar óskast :) og þó ég sé herna á hinum endanum þá verðum við að blogga eitthvað a þessu síðu, ég get nu ekkert sagt en ;) eg meina stelpur alltaf þegar þið hafið ekkert að gera í vinnunni þá bombiði bara inn einu stykki bloggi :) nema steinunn fær leyfi fyrir að bblogga ekki því það er altaf kreisí að gera hjá henni í vinnunni!! Annars hef eg ekkert að blogga um langaði bara að kasta kveðju á ykkur glókollana ;)**** mér sýnist það vera nóg við að hafast hja ykkur í 20 afmælum hverja helgi :) á ég eitthvað að vera bæta einu við í lok nóv?? og heyrðu taka helgina 16.nóv til 18.nóv frá... og íris rós ertu enn á lífi ??? Love jú guys!!! Kveðja útlendingurinn

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 17:04:27 / SaraLind

Mig langar í úrið hans Bernharðs !!

Við erum að tröllríða bloggheiminum, það er ekki hægt að segja neitt annað... !!!

 En skemmtilegt að segja frá því að það eru einungis 126 dagar þangað til við förum í heimsreisuna, á morgunn eru akkurat 4 mánuðir, þetta á eftir að líða skotfljótt (vonandi), td. það eru akkurat 4 mánuðir líka í dag síðan við útskrifuðumst og það er eins og það hafi verið fyrir korteri síðan... :D

Þetta eru einungis 2 dæmi af 1000000000 hlutum sem við ætlum að gera, en pælið í hvað við verðum svalar á brimbretti, (þegar við erum hættar að detta) :)

En allaveganna þá átti Anna litla Marín afmæli á sunnudaginn, hélt það á laugardaginn, bauð okkur í gúrme pinnamat, sem var ekki lengi að þjóta af borðunum þegar við skrímslin mættum loks á staðin, og tala nú ekki um þegar Guðjón mætti og reddkaði sér löngum pinna og hlóð kjötbollum á hann, og var að reyna að löðra sósu á þær þegar hann sá að það voru sona 10 stelpur sem hann þekkti ekki að glápa á hann, þá hló hann vandræðalega og forðaði sér :D En við skemmtum okkur konunglega, það var dansað, farið í drykkjuleik, borðað, sumar tóku kærastatalið á þetta (það var fyndið;) :) En hún Anna Marín, fékk langþráðan draum sinn uppfylltan á Sunnudaginn í fjölskylduafmælinu sínu, en hún fékk rauðan Yaris T-sport í afmælisgjöf frá Konráði bróður sínum, og þar sem Anna er þekkt fyrir miklar tilfinningar þá varð tilfinningasprengja í gangi, hún öskraði, grét og allann pakkan, þú ert yndi lilla :D

 

Já núna þeytist hún um göturnar á þessu kvikyndi, og verð ég nú að viðurkenna það að hann er aðeins flottari en Golden og þetta er hlutur sem ég viðurkenni nú ekki oft !!

En svo eru ég og Steinun búnar að redda bústað helgina 9-11. Nóvember, einungis með því að féflétta lítil börn, voða gaman, þar sem Hrefna og Nonni þurfa fylgdarmenn ásamt vinum sínum upp í bústað og fannst við svona rosa tilvalnar og buðu okkur í staðin að fá sér bústað og þau myndu borga, þanig við erum good to go, það er bara að taka þessa helgi frá ;) gaaman

En jæja ég ætla að enda þessa gífurlega skemmtilegu færslu, þið afsakið mig, hef minna en ekkert að gera hér í vinnunni....

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 17:45:10 / ÞoraHrund

Varúð, ólétta að ganga!

Ég get ekki að því gert ég hef bara einhverja vonda tilfinningu fyrir Bandaríkjunum og hef alltaf gert þar sem ég hef ekki komið þangað hef ég verið að reyna hætta að hata þetta land svona mikið en alltaf koma upp fleiri og fleiri ástæður sem gera það að verkum að ég verð bara hneigslaðari. Ég kveikti á tölvunni rétt í þessu, kíkti inná mbl og sá ég þá ekki þessa ótrúlega heimsku frétt

Starfsmaður á McDonalds-veitingastað í Union City í Georgíu í Bandaríkjunum sat eina nótt í fangelsi fyrir að selja lögreglumanni brimsaltan hamborgara. Lögreglumaðurinn segir að sér hafi orðið óglatt eftir að hann borðaði borgarann og þurft að kasta upp. Starfsmaðurinn, Kendra Bull, viðurkenndi að hafa óvart sett of mikið salt í hamborgarann sem lögreglumaðurinn fékk. Hefur Bull verið ákærð fyrir gáleysi. Bull segist ekki skilja í því hvers vegna lögreglumaðurinn hafi borðað allan borgarann ef hann hafi verið svona hræðilega saltur. (NÁKVÆMLEGA!)

En já þeir segja að mikill meirihluti þjóðar sé hlynntur evrunni? HVað segjið þið um það? Ég er ekki tilbúin til að byrja nota nýja peninga þó ég væri s.s. alveg til í að við færum í ESB.

EN nóg um fréttir og svoleiðis vitleysu. Ég er fegin að ég fór ekki niðrí bæ um helgina því maður hefði getað verið tekinn fyrir að pissa á almannafæri og þurft að vera í fangelsi yfir heila nótt.. og þá hefði þóra litla fríkað út og dáið úr innilokunarkennd. (ég er samt ekkert lítil;)) En erum við að ræða þá snilld sem allir hafa beðið eftir að fóstbræður séu að koma út á DVD og þá verður sko tekið maraþonið, Sara mín er ekki búin að sjá nema 2 þætti sem mér finnst mjög einkennilegt bæði því hún horfir mjög mikið á sjónvarpið, mest af okkur stelpunum og í þokkabót vorum við allar húkt á þessu. Ég var að byrja lesa bókina secrets sem er bara mjög skemmtileg og áhugaverð mjög, ég er ennþá með smá efasemdir um ýmislegt af þessu en hér er klárlega um náttúrulögmál að ræða. Ég þarf að klára horfa á myndina við tækifæri. Ég gerðist líka svo menningarleg að fara á Mr. Egils Skallagrímsson um helgina, ég verð að viðurkenna að ég bjóst ekki við neitt rosalega miklu þegar ég mætti þar sem mér fannst egilssaga ekkert sú skemmtilegasta í skóla en nú skil ég afhverju þetta var valið besta leikritið og hann fékk verðlaun fyrir besta leikinn. Mjög fyndið og skemmtilegt leikrit og einstaklega vel leikið :) Ekki er ég hætt að vera menningarleg því ætla ég að sjá veðramót í kvöld í bíó.

ÉG ÆTLA AÐ VARA YKKUR STELPUR VIÐ, ÞAÐ ER AÐ GANGA ÓLÉTTA! HÚN ER Á HVERJU HORNI OG MAÐUR VIRÐIST EKKI VERA ÓHULTUR FYRIR HENNI NEINSSTAÐAR...!

Olla bolla með bindi, ég er farin að gera eithvað hell of a fun. P.S eigum við að fara eithvað skemmtilegt næstu helgi, kannski bústað þar sem það rignir of mikið til að fara í tjald?

Kær kveðja Þóra Hrund


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Heimsreisa
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 784 dögum
Allskonar